Forsíða
Sölustaðir
Verðskrá
Leiðbeiningar
Net-Kaup
Netsími
Símbúnaður
Hafa samband
 SPURT OG SVARAÐ
Algengar spurningar
Digital Frelsi Hringikort  
   
Eru skattar og gjöld innifalið í auglýstu verði?  
>Já, allar hringingar eru fyrirframgreiddar hjá phone.is og þú borgar einungis auglýst verð, við sendum þér eingan reikning fyrir símtala notkun eftirá.  
   
Kostar það sama að hringja hjá ykkur allan sólarhringinn?  
>já, alltaf jafn ódýrt ;)  
   
Ef ég hringi í gegnum síman hjá mér í þjónustuna og til útlanda, rukka símafélögin mig eithvað fyrir útlandasímtöl?  
>Nei, þegar þú hringir í aðgangsnúmer okkar þá fer utanlands hlekkurinn í gengum okkur og það rukkast einungis af Digital Frelsi hringikortinu.  
   
Mun ég vita hvað ég á mikið eftir af inneignini hjá mér eftir hvert símtal?  
>Já, kerfið lætur þig vita hvað þú getur talað í margar mínutur fyrir hvert símtal.  
   
Er einhver gildistími á kortunum?  
>já, það er 6 mán. eftir fyrstu notkun.  
   
Ef ég er ekki búinn að nota kortið mitt í langan tíma.. segjum yfir 90 daga, get ég gert það aftur virkt?  
>Já, ef þú kaupir áfyllingu á netinu færðu inneign þína aftur og kortið verður virkt í 1 ár frá dagsetningu áfyllingarinnar.  
   
Hvernig greiðist taltíminn af hringikortinu?  
>þú greiðir einungis fyrir fyrirframgreidda Hringikortið Digital Fresli.
Það er ekkert upphafsgjald í kerfinu heldur er hver mínútan gjaldfærð samkvæmt verðskrá.
 
   
Þarf ég að fá einhverskonar SIM kort í síman hjá mér til að nota þjónustuna hjá ykkur?  
>Nei, þú notar núverandi símkerfi.  
   
Ef viðkomandi hefur ekki tölvu né kredit kort er einhver séns að nálgst þjónustuna?  
>já, þú getur farið á okkar fjölmörgu endursölu staði og keypt Digital Frelsi Hringikort.
Skoða endursölustaði>>
 
   
Ég er í áskrift hjá Símanum get ég notað þjónustuna ykkar?  
>Já, Phone.is er óháð öllum símafyrirtækjum.  
   
Er hægt að nota Digital Frelsi til að hringja frá útlöndum til Íslands?  
>Já, Digital Frelsi hringikortin eru með gjaldfrjáls aðgangsnúmer í 28 löndum.
skoða lönd sem eru í boði>>
skoða verðskrá>>
 
   
Hvað kostar mig að hringja til íslands frá útlöndum?  
>Verðið er frá 5kr upp í 35kr á hverja mínútu, fer eftir því hvort þú ert að hringja í landlínu eða farsíma.
skoða verðskrá>>
 
   
Gjaldfærist eithvað á símareikningin hjá mér þegar ég nota þjónustuna hjá ykkur?  
>þegar þú hringir í Aðgangsnúmerin 525 8600 og 575 2800 þá gjaldfærist venjulegt símtalsgjald símafélagana á símareikningin hjá þér eða frá kr. 0,90 (kvöld/helgar) til kr. 1,60 (virkir dagar) á mínútu. Ef hringt er úr gsm þá gjaldfærist gsm síminn.
Ef þú hringir í 800 númerið okkar þá er það alveg gjaldfrjálst í tíkallasímum og landlínu símum. Þú færð færri mínútur af hringikortinu þínu ef þú notað 800 númerið.
 
   
Get ég notað 800 númerið ykkar á GSM síman minn?  
>800 númer eru ekki gjaldfrjáls úr GSM símum. Þú greiðir eins og þú sért að hringja í venjulega landlínu úr GSM. Notaðu frekar 525 8600 ef þú ert að hringja úr GSM.
 
   
Getur maður hringt til allra landa með Phone.is?  
>Já, með Digital Frelsi geturðu hringt frá 28 löndum til allra landa og í hvaða síma sem er.  
   
Bjóðið þið einungis uppá hringikort?  
>Phone.is býður uppá alhliða lausnir varðandi sima fjarskipti.. hvort sem það er innanlands eða utan, en öll okkar þjonusta fyrir utan hringikortin er háð háhraða interneti t.d ADSL
 
   
Stundum kemur það fyrir að ég næ ekki sambandi í fyrstu tilraun. Er einhver leið að losna við að þurfa að slá allt pin-númerið inn aftur?  
>Ef þú nærð ekki sambandi í fyrstu tilraun nægir að slá tvisvar á kassa (##) og svo símanúmerið. Þannig er óþarfi að slá inn Account og Pin númerið aftur. Þannig getur þú einnig hringt fleirri en eitt símtal með því að ýtta á ##  
   
Skiptir máli hvort ég hringi í heimasíma eða farsíma eða eru sömu verð á báðum?  
>Í flestum tilfellum er dýrara að hringja í farsíma en hinsvegar eru undantekningar þar á þar sem það kostar það sama að hringja í landlínu og farsíma eins og Bandaríkin, Canada, kina, Thailand, Indland og fl.  
   
Ég hef verið að reyna að hringja til útlanda með Digital Frelsi kortinu og Það er eins og ég nái ekki að slá inn allt Account og Pin númerið í tíma og símstöðin lokar á mig með meldingu um að ég hafi rangt Account og Pin númer. Afhverju lætur þetta svona?  
>það er mjög sennilegt að símtækið hjá þér sé stillt á "ring-tone" þ.e. þá heyrist hljóð sem minnir á gömlu skífusímana þegar númerið er valið en það tekur einfaldlega of langan tíma. Þetta má auðveldlega leysa með því að stilla símtækið á "dial-tone" og málið er leyst. Langflest símtæki bjóða uppá þennan möguleika.  
   
   
 
Digital Frelsi HRINGIKORT
SÍMBÚNAÐUR
NETSÍMI
Sími og net fjarskipti ehf    Grensásvegi 8    108 Reykjavík    Sími. 552 1000    e-mail. son@son.is
Hafa samband Spurt og svarað English